
Forsetahjónin Ásgeir Ásgeirsson og Dóra Þórhallsdóttir í opinberri heimsókn í Þingeyjarsýslur í júlí árið 1955.
Varðskipið Þór leggur að höfn og Ásgeir og Dóra ganga á land á Húsavík. Júlíus Havsteen, sýslumaður, tekur á móti forsetahjónunum. Barnaskólinn í byggingu og Ásgeir leggur hornstein að honum. Laxárvikjun skoðuð, Laugar og Héraðsskólinn þar heimsótt, stutt heimsókn í Námaskarð og Mývatnssveit. Brúin yfir Jökulsá á fjöllum skoðuð sem og Kópasker. Ásgeir rennir fyrir fisk af varðskipinu Þór áður en lagt er við bryggju í Raufarhöfn. Séra Ingimundur Ingimundarson messar í Raufarhafnarkirkju. Að lokum heimsækja forsetahjónin Þórshöfn og Svalbarðseyri.
Við stofnun lýðveldis á Íslandi var Vigfús Sigurgeirsson gerður að sérstökum ljósmyndara hins nýja forsetaembættis. Þeirri skyldu gegndi hann í forsetatíð Sveins Björnssonar og Ásgeirs Ásgeirssonar og skrásetti marga merkilega viðburði og ferðalög þeirra bæði á ljós- og kvikmyndum.
Kvikmyndataka
Athugasemdir
Það eru engar athugasemdir. Gerðu fyrstu athugasemdina