DA
                Kvikmynd sem Karl Sæmundsson tók á eigin vegum. Þann 30. mars árið 1949 lá fyrir Alþingi að greiða atkvæði um það hvort að Ísland myndi ganga í Atlantshafsbandalagið, NATO. Fylkingar mynduðust bæði meðal andstæðinga inngöngunnar sem og þeirra sem voru hlynnt henni og augljós spenna var í loftinu þennan merkilega dag. Hópur mótmælenda hélt fund við Miðbæjarskólann áður en hann hélt á Austurvöll til að mótmæla inngöngunni. Á meðan hafði hópur NATO-sinna myndað vörð utan um Alþingi til að vernda það fyrir mögulegum ágangi. Á myndunum sést hvernig sló í brýnu á milli fylkinganna og þá sérstaklega á milli mótmælenda og lögreglu þar til táragasi var beitt til að dreifa úr mannfjöldanum.
Margir kvikmyndatökumenn voru viðstaddir þennan atburð og skjalfestu hann nokkuð vel frá ólíkum sjónarhornum. Myndin var einungis sýnd á lokuðum viðburðum á vegum ungra Sjálfstæðismanna sem sýnir hversu heiftarleg umræðan var um atburðina þennan dag. Í myndinni má finna tökur frá öðrum kvikmyndagerðarmönnum sem og einstakar myndir mitt úr röðum varnarliða við Alþingishúsið.
Kolbeinn Rastrick vann rannsókn á Kvikmyndasafni Íslands um það kvikmyndaefni sem til er af óeirðunum og er hlekkur að ritgerð hans hér á síðunni.
 
Kvikmyndataka
Efnisorð
Links:
Er sjón sögu ríkari?
                          
Athugasemdir
Það eru engar athugasemdir. Gerðu fyrstu athugasemdina