Myndir

Skálholtshátíðin 1956

1956, 12 min., Þögul
DA

Skálholtshátíð 1. júlí árið 1956. Forsetahjónin Ásgeir Ásgeirsson og Dóra Þórhallsdóttir mæta á hátíðina. Lúðrasveit Reykjavíkur leikur. Séra Ásmundur Guðmundsson leggur hornstein að hinni nýju kirkju í Skálholti. Páll Ísólfsson stjórnar Kantötukór, Þuríður Pálsdóttir og Guðmundur Jónsson syngja. Ólafur Thors flytur ræðu. Leikritið Leiftur liðinna alda flutt. Steingrímur Steinþórsson, kirkjumálaráðherra, lýkur hátíðinni með ávarpi.

Við stofnun lýðveldis á Íslandi var Vigfús Sigurgeirsson gerður að sérstökum ljósmyndara hins nýja forsetaembættis. Þeirri skyldu gengdi hann í forsetatíð Sveins Björnssonar og Ásgeirs Ásgeirssonar og skrásetti marga merkilega viðburði og ferðalög þeirra bæði á ljós- og kvikmyndum.

Kommentarer

Það eru engar athugasemdir. Gerðu fyrstu athugasemdina

CAPTCHA
Dette spørgsmål er for at teste om du er et menneske og for at undgå spam.

Athugasemdir

Það þarf að samþykkja athugasemd þína áður en hún birtist á vefnum.
Hafið samband við Kvikmyndasafn Íslands ef upp koma tæknileg vandamál Sjá kvsi@kvikmyndasafn.is.
Viltu kaupa afrit af myndinni eða klippt? Hafðu samband filmarkivet@dfi.dk