Myndir

Bruni á Ægisgarði og óeirðir

1949, 12 min., Þögul
DA

Kvikmynd sem Karl Sæmundsson tók á eigin vegum.  Þann 30. mars árið 1949 lá fyrir Alþingi að greiða atkvæði um það hvort að Ísland myndi ganga í Atlantshafsbandalagið, NATO. Fylkingar mynduðust bæði meðal andstæðinga inngöngunnar sem og þeirra sem voru hlynnt henni og augljós spenna var í loftinu þennan merkilega dag. Hópur mótmælenda hélt fund við Miðbæjarskólann áður en hann hélt á Austurvöll til að mótmæla inngöngunni. Á meðan hafði hópur NATO-sinna myndað vörð utan um Alþingi til að vernda það fyrir mögulegum ágangi. Á myndunum sést hvernig sló í brýnu á milli fylkinganna og þá sérstaklega á milli mótmælenda og lögreglu þar til táragasi var beitt til að dreifa úr mannfjöldanum.

Margir kvikmyndatökumenn voru viðstaddir þennan atburð og skjalfestu hann nokkuð vel frá ólíkum sjónarhornum. Myndin var einungis sýnd á lokuðum viðburðum á vegum ungra Sjálfstæðismanna sem  sýnir hversu heiftarleg umræðan var um atburðina þennan dag. Í myndinni má finna tökur frá öðrum kvikmyndagerðarmönnum sem og einstakar myndir mitt úr röðum varnarliða við Alþingishúsið.


Kolbeinn Rastrick vann rannsókn á Kvikmyndasafni Íslands um það kvikmyndaefni sem til er af óeirðunum og er hlekkur að ritgerð hans hér á síðunni.
 

Kommentarer

Það eru engar athugasemdir. Gerðu fyrstu athugasemdina

CAPTCHA
Dette spørgsmål er for at teste om du er et menneske og for at undgå spam.

Athugasemdir

Það þarf að samþykkja athugasemd þína áður en hún birtist á vefnum.
Hafið samband við Kvikmyndasafn Íslands ef upp koma tæknileg vandamál Sjá kvsi@kvikmyndasafn.is.
Viltu kaupa afrit af myndinni eða klippt? Hafðu samband filmarkivet@dfi.dk