Myndir

Jarðarför Sveins Björnssonar ofl.

1952, 21 min., Þögul
DA

Jarðarför Sveins Björnssonar, 2. febrúar árið 1952 en hann lést í embætti þann 25. janúar sama ár. Séra Bjarni Jónsson, dómkirkjuprestur, jarðsyngur. Forsetahjónin Ásgeir Ásgeirsson og Dóra Þórhallsdóttir í opinberri heimsókn í Hafnarfirði í september árið 1953. Helgi Hannesson, bæjarstjóri Hafnarfjaðar, heldur ræðu. Fólk skoðar Hellisgerði og stoppar m.a. hjá minnismerkinu af Bjarna Sívertsen. Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur undir stjórn Alberts Klahn. Forsetahjónin Ásgeir Ásgeirsson og Dóra Þórhallsdóttir í opinberri heimsókn í Snæfells- og Hnappadalssýslu 13. júlí 1957. Helgafellskirkja og Stykkishólmur heimsótt. Ólafur Guðmundsson, sveitarstjóri og Kristinn P. Gíslason, oddviti, sýna forsetahjónunum bæinn. Fransiskuspítalinn og nunnur sjást í dyragættinni. Forsetahjónin Sveinn Björnsson og Georgía Björnsson í heimsókn á Húsavík, 9. ágúst 1945. Sveinn Björnsson og Georgía Björnsson mæta til messu í Bessastaðakirkju. Séra Sigurgeir Sigurðsson, biskup Íslands, og séra Bjarni Jónsson, vígslubiskup og Dómkirkjuprestur. Fleiri prestar koma á eftir m.a. séra Ásmundur Guðmundsson og séra Sigurbjörn Einarssonar sem báðir urðu biskupar síðar. Við stofnun lýðveldis á Íslandi var Vigfús Sigurgeirsson gerður að sérstökum ljósmyndara hins nýja forsetaembættis. Þeirri skyldu gengdi hann í forsetatíð Sveins Björnssonar og Ásgeirs Ásgeirssonar og skrásetti marga merkilega viðburði og ferðalög þeirra bæði á ljós- og kvikmyndum.

 

 

Kommentarer

Það eru engar athugasemdir. Gerðu fyrstu athugasemdina

CAPTCHA
Dette spørgsmål er for at teste om du er et menneske og for at undgå spam.

Athugasemdir

Það þarf að samþykkja athugasemd þína áður en hún birtist á vefnum.
Hafið samband við Kvikmyndasafn Íslands ef upp koma tæknileg vandamál Sjá kvsi@kvikmyndasafn.is.
Viltu kaupa afrit af myndinni eða klippt? Hafðu samband filmarkivet@dfi.dk