
Jarðarför Jónasar Hallgrímssonar á Þingvöllum 16. nóvember árið 1946 í Þjóðargrafreitnum við Þingvallakirkju. Fólk mætir til kirkju, aðallega fyrirmenn þjóðarinnar.
Kista Jónasar borin út. Ólafur Thors, forsætisráðherra, og Jónas Jónsson frá Hriflu þingmaður Framsóknarflokksins, fremstu líkmenn en auk þeirra: Jón Pálmason, forseti sameinaðs Alþingis, Þorsteinn Þorsteinsson, forseti efri deildar Alþingis, Barði Guðmundsson, forseti neðri deildar Alþingis, Jörundur Brynjólfsson, þingmaður Framsóknarflokksins, Sigurður Kristjánsson, formaður þingvallanefndar og Bernharð Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Þá taka viðkistunni rithöfundar og náttúrufræðingar: Guðmundur Hagalín, Guðmundur Daníelsson, Jakob Thorarensen, Friðrik Brekkan, Árni Friðriksson, Sigurður Pjetursson, Ingólfur Davíðsson og Þór Guðjónsson. Eftir þeim ganga biskup Íslands séra Sigurgeir Sigurðsson, séra Hálfdán Helgason og séra Bjarni Jónsson, vígslubiskup
Athugasemdir
Það eru engar athugasemdir. Gerðu fyrstu athugasemdina