Forsetaheimsókn 1. og 2. september 1956 í V-Skaftafellssýslu. Forsetahjónin Ásgeir Ásgeirsson og Dóra Þórhallsdóttir ásamt syninum Þórhalli Ásgeirssyni aka yfir Jökulsá á Sólheimasandi í forsetabílnum. Jón Kjartansson sýslumaður tekur á móti þeim ásamt sýslunefnd.
Við stofnun lýðveldis á Íslandi var Vigfús Sigurgeirsson gerður að sérstökum ljósmyndara hins nýja forsetaembættis. Þeirri skyldu gegndi hann í forsetatíð Sveins Björnssonar og Ásgeirs Ásgeirssonar og skrásetti marga merkilega viðburði og ferðalög þeirra bæði á ljós- og kvikmyndum.
Þetta myndskeið er úr kvikmynd
Ef þú þekkir staði, fólk eða annað sem sést í myndinni getur þú klippt myndskeið úr henni.
Það er líka velkomið að bæta inn athugasemdum með þínu myndskeiði Gerðu þitt eigið myndskeið!
Athugasemdir
Það eru engar athugasemdir. Gerðu fyrstu athugasemdina