Myndefni úr fórum Óskars Gíslasonar ljósmyndara og kvikmyndagerðarmanns. Óskar (1901-1990) var einn helsti frumkvöðull íslenskrar kvikmyndagerðar og meðal þekktustu verka hans má nefna Reykjavík vorra daga, Björgunarafrekið við Látrabjarg og Síðasti bærinn í dalnum.
Þessi kvikmynd samanstendur af myndbrotum sem Óskar tók upp á ólíkum tímabilum, aðallega af fjölskyldu sinni og vinum. Má þar nefna leiki barnanna í garðinum heima, jól, afmæli og lautarferðir á Þingvelli. Einnig eru inn á milli upptökur þar sem Óskar hefur verið að prófa sig áfram með nýja tækni. Til dæmis tilraunir sem hann gerði með Þorleifi Þorleifssyni samstarfsmanni sínum, fyrir upptökur á kvikmyndinni Síðasti bærinn í dalnum. Hún er fyrsta leikna kvikmynd Óskars Gíslasonar og var tekin upp á Tannastöðum í Ölfusi, í Kershelli og í Kjósinni og var frumsýnd árið 1950. Jórunn Viðar samdi tónlistina við myndina og var það fyrsta kvikmyndatónlist sem samin var á Íslandi við mynd í fullri lengd.
Athugasemdir
Það eru engar athugasemdir. Gerðu fyrstu athugasemdina