Myndir

Óeirðamynd Sósíalistaflokksins 30. mars 1949

1949, 6 min., Þögul
DA

Óeirðamynd sem tengd er við Sósíalistaflokkinn á Íslandi. Þann 30. mars árið 1949 lá fyrir Alþingi að greiða atkvæði um það hvort að Ísland myndi ganga í Atlantshafsbandalagið, NATO. Fylkingar mynduðust bæði meðal andstæðinga inngöngunnar sem og þeirra sem voru hlynnt henni og augljós spenna var í loftinu þennan merkilega dag. Hópur mótmælenda hélt fund við Miðbæjarskólann áður en hann hélt á Austurvöll til að mótmæla inngöngunni. Á meðan hafði hópur NATO-sinna myndað vörð utan um Alþingi til að vernda það fyrir mögulegum ágangi. Á myndunum sést hvernig sló í brýnu á milli fylkinganna og þá sérstaklega á milli mótmælenda og lögreglu þar til táragasi var beitt til að dreifa úr mannfjöldanum.
Margir kvikmyndatökumenn voru viðstaddir þennan atburð og skjalfestu hann nokkuð vel frá ólíkum sjónarhornum. Ekki er með vissu vitað hver kvikmyndatökumaður þessara mynda er en Kvikmyndasafnið fagnar öllum ábendingum varðandi það hver eða hverjir gætu hafa staðið á bakvið þessa kvikmynd. Myndin barst safninu frá Sovétríkjunum en er merkt Sósíalistaflokknum.


Kolbeinn Rastrick vann rannsókn á Kvikmyndasafni Íslands um það kvikmyndaefni sem til er af óeirðunum og er hlekkur að ritgerð hans hér á síðunni.
 

Kommentarer

Það eru engar athugasemdir. Gerðu fyrstu athugasemdina

CAPTCHA
Dette spørgsmål er for at teste om du er et menneske og for at undgå spam.

Athugasemdir

Það þarf að samþykkja athugasemd þína áður en hún birtist á vefnum.
Hafið samband við Kvikmyndasafn Íslands ef upp koma tæknileg vandamál Sjá kvsi@kvikmyndasafn.is.
Viltu kaupa afrit af myndinni eða klippt? Hafðu samband filmarkivet@dfi.dk