Myndskeið af 100 ára afmæli Barnaskólans á Eyrarbakka þann 25. október 1952. Myndskeiðið hefst á myndum af sauðfé dregnu í dilka inni í kaupstaðnum. Hátíðahöldin fara fram í skólahúsinu, Vigfús Jónsson, oddviti Eyrarbakka býður fólk velkomið. Kirkjukór Eyrarbakkakirkju syngur. Ræðumenn eru eftirfarandi: Sigurður Kristjánsson, formaður skólanefndar Barnaskóla Eyrarbakka, Guðmundur Daníelsson, skólastjóri, Helgi Elíasson, fræðslumálastjóri, Bjarni M. Jónsson, námsstjóri. Nemendur barnaskólans ljúka dagskrá í barnaskólanum með því að syngja undir stjórn Guðmundar Daníelssonar skólastjóra. Sigurður Kristjánsson, formaður skólanefndar, leggur blómsveig að leiði að leiði Péturs Guðmundssonar fyrrum skólastjóra á Eyrarbakka.
Staðsetning
Efnisorð
Þetta myndskeið er úr kvikmynd
Ef þú þekkir staði, fólk eða annað sem sést í myndinni getur þú klippt myndskeið úr henni.
Það er líka velkomið að bæta inn athugasemdum með þínu myndskeiði Gerðu þitt eigið myndskeið!
Athugasemdir
Það eru engar athugasemdir. Gerðu fyrstu athugasemdina