Myndskeið af 100 ára afmæli Barnaskólans á Eyrarbakka þann 25. október 1952. Myndskeiðið hefst á myndum af sauðfé dregnu í dilka inni í kaupstaðnum.
Hátíðahöldin fara fram í skólahúsinu, Vigfús Jónsson, oddviti Eyrarbakka býður fólk velkomið. Kirkjukór Eyrarbakkakirkju syngur. Ræðumenn eru eftirfarandi: Sigurður Kristjánsson, formaður skólanefndar Barnaskóla Eyrarbakka, Guðmundur Daníelsson, skólastjóri, Helgi Elíasson, fræðslumálastjóri, Bjarni M. Jónsson, námsstjóri. Nemendur barnaskólans ljúka dagskrá í barnaskólanum með því að syngja undir stjórn Guðmundar Daníelssonar skólastjóra. Sigurður Kristjánsson, formaður skólanefndar, leggur blómsveig að leiði að leiði Péturs Guðmundssonar fyrrum skólastjóra á Eyrarbakka.
Eyrarbakkakirkja, afmælisathöfn barnaskólans. Kirkjan þéttskipuð. Ásgeir Ásgeirsson, forseti Íslands, og Dóra Þórhallsdóttir, forsetafrú, setjast á fremsta bekk. Séra Árelíus Níelsson messar. Séra Sigurgeir Sigurðsson biskup Íslands flytur ávarp.
Skemmtidagskrá í samkomuhúsi bæjarins. Barnaskólabörn syngja.
Tegund
Land
Kvikmyndataka
Efnisorð
Athugasemdir
Það eru engar athugasemdir. Gerðu fyrstu athugasemdina