Myndskeið

Jónas Hallgrímsson jarðsunginn á Þingvöllum

4:52 min

Jarðarför Jónasar Hallgrímssonar á Þingvöllum 16. nóvember árið 1946 í Þjóðargrafreitnum við Þingvallakirkju. Fólk mætir til kirkju. Kista Jónasar borin út. Ólafur Thors, forsætisráðherra, og Jónas Jónsson frá Hriflu þingmaður Framsóknarflokksins er fremstu líkmenn en auk þeirra bera kistuna þeir Jón Pálmason, forseti sameinaðs Alþingis, Þorsteinn Þorsteinsson, forseti efri deildar Alþingis, Barði Guðmundsson, forseti neðri deildar Alþingis, Jörundur Brynjólfsson, þingmaður Framsóknarflokksins, Sigurður Kristjánsson, formaður þingvallanefndar og Bernharð Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Þá taka við kistunni rithöfundar og náttúrufræðingar, þeir Guðmundur Hagalín, Guðmundur Daníelsson, Jakob Thorarensen, Friðrik Brekkan, Árni Friðriksson, Sigurður Pjetursson, Ingólfur Davíðsson og Þór Guðjónsson. Eftir þeim ganga biskup Íslands séra Sigurgeir Sigurðsson, séra Hálfdán Helgason og séra Bjarni Jónsson, vígslubiskup.

Þetta myndskeið er úr kvikmynd

Ef þú þekkir staði, fólk eða annað sem sést í myndinni getur þú klippt myndskeið úr henni.

Það er líka velkomið að bæta inn athugasemdum með þínu myndskeiði Gerðu þitt eigið myndskeið!

myndskeið í nágrenninu

Kommentarer

Það eru engar athugasemdir. Gerðu fyrstu athugasemdina

CAPTCHA
Dette spørgsmål er for at teste om du er et menneske og for at undgå spam.

Athugasemdir

Það þarf að samþykkja athugasemd þína áður en hún birtist á vefnum.
Hafið samband við Kvikmyndasafn Íslands ef upp koma tæknileg vandamál Sjá kvsi@kvikmyndasafn.is.
Viltu kaupa afrit af myndinni eða klippt? Hafðu samband filmarkivet@dfi.dk