Myndskeið

Kekkonen Finnlandsforseti ferðast um Norðurland

6:11 min

Finnsku forsetahjónin Urho Kekkonen og Sylvi Kekkonen í opinberri heimsókn til Íslands í ágúst árið 1957. Ásgeir Ásgeirsson forseti og Dóra Þórhallsdóttir forsetafrú taka á móti forsetahjónunum. Flogið er til Akureyrar þar sem móttaka á sér stað við Akureyrarkirkju. Forsetarnir koma víða við, meðal annars í Reykjahlíð og á Geiteyjarströnd þar sem vel fer á með Kekkonen og ábúendum.

Við stofnun lýðveldis á Íslandi var Vigfús Sigurgeirsson gerður að sérstökum ljósmyndara hins nýja forsetaembættis. Þeirri skyldu gegndi hann í forsetatíð Sveins Björnssonar og Ásgeirs Ásgeirssonar og skrásetti marga merkilega viðburði og ferðalög þeirra bæði á ljós- og kvikmyndum.

 

Þetta myndskeið er úr kvikmynd

Ef þú þekkir staði, fólk eða annað sem sést í myndinni getur þú klippt myndskeið úr henni.

Það er líka velkomið að bæta inn athugasemdum með þínu myndskeiði Gerðu þitt eigið myndskeið!

myndskeið í nágrenninu

Kommentarer

Það eru engar athugasemdir. Gerðu fyrstu athugasemdina

CAPTCHA
Dette spørgsmål er for at teste om du er et menneske og for at undgå spam.

Athugasemdir

Það þarf að samþykkja athugasemd þína áður en hún birtist á vefnum.
Hafið samband við Kvikmyndasafn Íslands ef upp koma tæknileg vandamál Sjá kvsi@kvikmyndasafn.is.
Viltu kaupa afrit af myndinni eða klippt? Hafðu samband filmarkivet@dfi.dk