Sveinn Björnsson og Georgía Björnsson mæta til messu í Bessastaðakirkju. Séra Sigurgeir Sigurðsson, biskup Íslands, og séra Bjarni Jónsson, vígslubiskup og Dómkirkjuprestur. Fleiri prestar koma á eftir m.a. séra Ásmundur Guðmundsson og séra Sigurbjörn Einarssonar sem báðir urðu biskupar síðar.
Við stofnun lýðveldis á Íslandi var Vigfús Sigurgeirsson gerður að sérstökum ljósmyndara hins nýja forsetaembættis. Þeirri skyldu gegndi hann í forsetatíð Sveins Björnssonar og Ásgeirs Ásgeirssonar og skrásetti marga merkilega viðburði og ferðalög þeirra bæði á ljós- og kvikmyndum.
Þetta myndskeið er úr kvikmynd
Ef þú þekkir staði, fólk eða annað sem sést í myndinni getur þú klippt myndskeið úr henni.
Það er líka velkomið að bæta inn athugasemdum með þínu myndskeiði Gerðu þitt eigið myndskeið!
Athugasemdir
Það eru engar athugasemdir. Gerðu fyrstu athugasemdina