Vegna einangrunar byggðarinnar er verkmenning á Hornströndum víða með fornu yfirbragði. Í Hornstrandamynd Ósvaldar má sjá forna búskaparhætti sem viðgengust þar enn um miðja 20. öldina. Eldri kona býr til skyr með gamla laginu. Hestur er spenntur fyrir herfi sem dregið er um tún og mór er stunginn úr mýri og dreift til þerris. Sóknarpresturinn séra Jónmundur Halldórsson bregður sér með veiðistöngina út í á, þegar færi gefst.
Staðsetning
Þetta myndskeið er úr kvikmynd
Ef þú þekkir staði, fólk eða annað sem sést í myndinni getur þú klippt myndskeið úr henni.
Það er líka velkomið að bæta inn athugasemdum með þínu myndskeiði Gerðu þitt eigið myndskeið!
Athugasemdir
Það eru engar athugasemdir. Gerðu fyrstu athugasemdina