Ef einhver hefur fundið töggur í páskaegginu sínu má hér sjá að tögguframleiðslan hjá Nóa á sér nærri aldargamla hefð. Hér er skyggnst inn í sælgætisgerðina og sýnt hvernig sykur og smjör er soðið saman í karamellukvoðu. Þegar karamellan hefur storknað mátulega er hún skorin í kubba. Starfsstúlkurnar í verksmiðjunni handpakka töggunum svo í loftþéttan silkipappír og sendillinn ekur sælgætinu í verslanir.
Staðsetning
Topics
Þetta myndskeið er úr kvikmynd
Ef þú þekkir staði, fólk eða annað sem sést í myndinni getur þú klippt myndskeið úr henni.
Það er líka velkomið að bæta inn athugasemdum með þínu myndskeiði Gerðu þitt eigið myndskeið!
Athugasemdir
Það eru engar athugasemdir. Gerðu fyrstu athugasemdina