Kjartan Ó. Bjarnason var fyrsti Íslendingurinn til að gera kvikmyndagerð að aðalstarfi þegar hann hætti sem prentari árið 1945. Kjartan skyldi ekki eftir sig margar fullbúnar kvikmyndir með titlum. Hann fluttist til Danmerkur og aflaði sér tekna með því að ferðast um Danmörku, og víðar, þar sem hann sýndi kvikmyndir frá Íslandi og talað yfir þær. Þá fór hann margar sýningaferðir um Ísland en þær nýtti hann einnig til að taka upp frekara efni til sýninga ytra.
Þeir bútar úr kvikmyndum Kjartans sem hér um ræðir eru annars vegar úr Austfjarðarkvikmynd sem hann hóf að gera um 1950 og hins vegar Vestfjarðarkvikmynd. Á Austurlandi má sjá bæjarfélög eins og; Norðfjörð, Eskifjörð og Seyðisfjörð. Á Vestfjörðum má sjá: Dýrafjörð, Önundarfjörð, Vigur, Ísafjörð, Bolungarvík, Arnarfjörð o.fl.
Tegund
Land
Kvikmyndataka
Efnisorð
Athugasemdir
Það eru engar athugasemdir. Gerðu fyrstu athugasemdina