Myndir

Kjartan Ó. Bjarnason kvikmyndir 16

9 min., Þögul
DA

Kjartan Ó. Bjarnason var fyrsti Íslendingurinn til að gera kvikmyndagerð að aðalstarfi þegar hann hætti sem prentari árið 1945. Kjartan skyldi ekki eftir sig margar fullbúnar kvikmyndir með titlum en eftir hann liggur þó mikið efni. Hann fluttist til Danmerkur og aflaði sér tekna með því að ferðast um Danmörku, og víðar, þar sem hann sýndi kvikmyndir frá Íslandi og talað yfir þær. Þá fór hann margar sýningaferðir um Ísland en þær nýtti hann einnig til að taka upp frekara efni til sýninga ytra.
Þeir bútar úr kvikmyndum Kjartans sem hér um ræðir eru skíðamyndir, náttúrumyndir og knattspyrna. Myndir af gönguskíðaiðkun í Hveradölum og af skíðakennslu í Tungudal við Ísafjörð. Myndir af Mývatni og Hraunfossum. Knattspyrna, Melavöllur. Árið 1950 kom hingað til lands liðið Tus-Neuendorf frá Þýskalandi og lék liðið undir merkjum Fussball Verband Rheinland (Knattspyrnusamband Rínarhéraðra). Fram og Víkingur tefldu fram sameiginlegu liðið gegn Þjóðverjunum í leiknum.

Kommentarer

Það eru engar athugasemdir. Gerðu fyrstu athugasemdina

CAPTCHA Dette spørgsmål er for at teste om du er et menneske og for at undgå spam.

Athugasemdir

Það þarf að samþykkja athugasemd þína áður en hún birtist á vefnum.
Hafið samband við Kvikmyndasafn Íslands ef upp koma tæknileg vandamál Sjá kvsi@kvikmyndasafn.is.
Viltu kaupa afrit af myndinni eða klippt? Hafðu samband filmarkivet@dfi.dk