Kjartan Ó. Bjarnason var fyrsti Íslendingurinn til að gera kvikmyndagerð að aðalstarfi þegar hann hætti sem prentari árið 1945. Kjartan skyldi ekki eftir sig margar fullbúnar kvikmyndir með titlum. Hann fluttist til Danmerkur og aflaði sér tekna með því að ferðast um Danmörku, og víðar, þar sem hann sýndi kvikmyndir frá Íslandi og talað yfir þær. Þá fór hann margar sýningaferðir um Ísland en þær nýtti hann einnig til að taka upp frekara efni til sýninga ytra.
Það kennir ýmissa grasa í þeim bútum úr kvikmyndum hans sem hér má. Nokkuð efni er frá Vestfjörðum; Patreksfirði, Súðavík og Suðureyri. Myndaðar eru brýr; Hvítárbrú, Ölfusárbrú og Þjórsárbrú. Þá má sjá viðburði eins og Alþjóðaskátamót á Þingvöllum árið 1960 og þrjú hestamannamót; um 1955 á Vallabökkum í Skagafirði, í Kjós 1952 og á Rangárbökkum 1963.
Tegund
Land
Kvikmyndataka
Efnisorð
Leikstjórn
Athugasemdir
Það eru engar athugasemdir. Gerðu fyrstu athugasemdina