Kjartan Ó. Bjarnason var fyrsti Íslendingurinn til að gera kvikmyndagerð að aðalstarfi þegar hann hætti sem prentari árið 1945. Kjartan skyldi ekki eftir sig margar fullbúnar kvikmyndir með titlum. Hann fluttist til Danmerkur og aflaði sér tekna með því að ferðast um Danmörku, og víðar, þar sem hann sýndi kvikmyndir frá Íslandi og talað yfir þær. Þá fór hann margar sýningaferðir um Ísland en þær nýtti hann einnig til að taka upp frekara efni til sýninga ytra.
Kvikmyndabútarnir sem hér sjást hefjast á snjóruðningi á Hellisheiði árið 1952. Þá tekur við vegagerð m.a. í Óshlíð og Krýsuvíkurvegi um 1950.
Athugasemdir
Það eru engar athugasemdir. Gerðu fyrstu athugasemdina