DA
Kvikmynd sem Vigfús Sigurgeirsson gerði fyrir Unga Sjálfstæðismenn. Þann 30. mars árið 1949 lá fyrir Alþingi að greiða atkvæði um hvort Ísland myndi ganga í Atlantshafsbandalagið, NATO. Fylkingar mynduðust meðal andstæðinga inngöngunnar og þeirra sem voru hlynntir henni. Augljós spenna lá í loftinu þennan sögulega dag. Hópur andstæðinga hélt fund við Miðbæjarskólann áður en haldið var á Austurvöll til að mótmæla inngöngunni. Á meðan hafði hópur NATO-sinna myndað vörð utan um Alþingi til að vernda það fyrir mögulegum ágangi. Á myndunum sést hvernig sló í brýnu á milli fylkinganna og ekki síður á milli mótmælenda og lögreglu þar til táragasi var beitt til að dreifa úr mannfjöldanum.
Margir kvikmyndatökumenn voru viðstaddir þennan atburð og skjalfestu hann nokkuð vel frá ólíkum sjónarhornum. Myndin var einungis sýnd á lokuðum viðburðum á vegum ungra Sjálfstæðismanna sem sýnir hversu heiftarleg umræðan var um atburðina þennan dag. Í myndinni má finna tökur frá öðrum kvikmyndagerðarmönnum sem og einstakar myndir mitt úr röðum varnarliða við Alþingishúsið.
Kolbeinn Rastrick vann rannsókn á Kvikmyndasafni Íslands um það kvikmyndaefni sem til er af óeirðunum og er hlekkur að ritgerð hans hér á síðunni.
Land
Kvikmyndataka
Efnisorð
Leikstjórn
Links:
Er sjón sögu ríkari?
Athugasemdir
Það eru engar athugasemdir. Gerðu fyrstu athugasemdina