Samansafn af efni sem Kjartan Ó. Bjarnason tók af erlendum þjóðhöfðingjum í opinberum heimsóknum á Íslandi. Þar gefur meðal annars að líta heimsókn Kekkonen Finnlandsforseta árið 1957, Philipus prins - hertogans af Edinborg árið 1964, Ólafs Noregskonungs árið 1961 og Gústafs Adolfs 6. Svíakonungs árið 1957. Fjölda íslenskra fyrirmenna og ráðamanna má sjá á myndunum og ber þar helst að nefna Ásgeir Ásgeirsson forseta Íslands og Dóra Þórhallsdóttir eiginkonu hans, Ólafur Thors, Bjarni Benediktsson, Gunnar Thoroddsen, Gylfi Þ. Gíslason og Kristján Eldjárn (þá þjóðminjavörður). Þá sjást meðal annars Bessastaðir, Reykjavíkurflugvöllur, Háskóli Íslands, Melaskóli, Þjóðminjasafnið, Ráðherrabústaðurinn við Tjarnargötu, Þjóðleikhúsið, Þingvellir og Reykholt í Borgarfirði á myndunum.
Tegund
Land
Kvikmyndataka
Efnisorð
Athugasemdir
Það eru engar athugasemdir. Gerðu fyrstu athugasemdina