Myndir

Kjartan Ó. Bjarnason kvikmyndir 13

1947, 7 min., Þögul
DA

Kjartan Ó. Bjarnason var fyrsti Íslendingurinn til að gera kvikmyndagerð að aðalstarfi þegar hann hætti sem prentari árið 1945. Kjartan skyldi ekki eftir sig margar fullbúnar kvikmyndir með titlum en eftir hann liggur þó mikið efni. Hann fluttist til Danmerkur og aflaði sér tekna með því að ferðast um Danmörku, og víðar, þar sem hann sýndi kvikmyndir frá Íslandi og talað yfir þær. Þá fór hann margar sýningaferðir um Ísland en þær nýtti hann einnig til að taka upp frekara efni til sýninga ytra.
Þeir bútar úr kvikmyndum Kjartans sem hér um ræðir eru af knattspyrnuleik á Melavellinum af leik úrvalsliðs Íslendinga við hið breska félag QPR (Queens Park Rangers) í júní 1947. Sveinn Helgason brenndi af víti og Ríkharður Jónsson skoraði mark í 6-1 tapi úrvalsins. QPR lék einnig við  Fram og KR. Albert Guðmundsson sést á myndunum. Upphaf Íslandsmóts karla í knattspyrnu, Fram og Víkingur mætast, myndir frá göngu liðanna inn á völlinn. Svipmyndir frá leik KR og QPR. Myndir af litlum börnum að leika í sandkassa og moka sandi. Ungar stúlkur í skautbúningum með fána.
Fuglar við sjó og sundkennari að kenna nemendum fótatök í sundi. Alþingismenn í sal Alþingis meðal annars Ásgeir Ásgeirsson þingmaður Alþýðuflokkur. Myndir frá London og sundlaug Neskaupsstaðar. 

Kommentarer

Það eru engar athugasemdir. Gerðu fyrstu athugasemdina

CAPTCHA Dette spørgsmål er for at teste om du er et menneske og for at undgå spam.

Athugasemdir

Það þarf að samþykkja athugasemd þína áður en hún birtist á vefnum.
Hafið samband við Kvikmyndasafn Íslands ef upp koma tæknileg vandamál Sjá kvsi@kvikmyndasafn.is.
Viltu kaupa afrit af myndinni eða klippt? Hafðu samband filmarkivet@dfi.dk