Koma flugkappanna Erik H. Nelson og Lowell H. Smith til Reykjavíkur þann 5. ágúst árið 1924 var liður í fyrstu flugferðinni sem farin var umhverfis jörðina. Ferðin var farin af 8 manna liði bandarískra flugliða og tók 175 daga. Eftir lendingu á Reykjavíkurhöfn í stífri norðanátt var flugmönnunum fagnað við höfnina. Flugvélin var svo færð á land framan við hús Eimskipafélagsins þar sem hún var lagfærð. Eldsneyti var sett á vélina úti á höfninni áður en hún hélt för sinni áfram til Grænlands. Einnig má sjá flugbát ítalans Antonio Locatelli lenda á ytri höfninni en hann og liðsmenn hans gerðu einnig tilraut til hnattflugs og hugðust fylga bandarísku leiðangursmönnum hluta af leið.
Tegund
Land
Efnisorð
Leikstjórn
Athugasemdir
Það eru engar athugasemdir. Gerðu fyrstu athugasemdina