Einstakt myndefni frá hátíðarhöldum í tilefni 17. júní á Ísafirði 1923. Bæjarbúar ganga spariklæddir um göturnar. Mun hér vera um myndefni danska ljósmyndarans Martinusar Simsons að ræða en hann var afar fjölhæfur listamaður sem settist að á Ísafirði og rak þar m.a. ljósmyndastofu á árunum 1918-1957. Í lokin má sjá saltfiskverkun í bænum, fólk í skemmtisiglingu um djúpið og yfirlitsmyndir af Flateyri.
Tegund
Category
Land
Kvikmyndataka
Efnisorð
Athugasemdir
Það eru engar athugasemdir. Gerðu fyrstu athugasemdina