Kynningarmynd um Ísland sem Kjartan Ó. Bjarnason var fenginn til að gera fyrir Utanríkisráðuneytið og var frumsýnd árið 1960. Myndin var unnin upp úr annarri víðfrægri mynd Kjartans, Sólskinsdagar á Íslandi, sem hann hafði sýnt við miklar vinsældir í áratug víða um lönd en telst í dag glötuð. This is Iceland var nýtt í landkynningartilgangi á vegum sendiráða Íslands, Loftleiða og annarra aðila sem vildu kynna landið fyrir erlendum ferðamönnum. Myndin virðist hafa verið unnin áfram og er þessi útgáfa hennar með enskri talsetningu og myndefni frá því um miðjan 7. áratuginn, meðal annars af Surtseyjargosinu sem hófst ekki fyrr en 1963.
Tegund
Land
Kvikmyndataka
Handrit
Leikstjórn
Athugasemdir
Það eru engar athugasemdir. Gerðu fyrstu athugasemdina